punk is not dead
Goodbye
kíkið við
Vorið er komið......
eyjunni er kennd er við ís. Notalegt élið leikur um andlitið
á meðan stöku bárujárnsplata blaktir í vindinum. Oft eru
landar vorir eins og sauðnaut að vori, sumir jafnvel byrjaðir
að ræða um sumardekk, aðrir um stuttbuxur og vorkomu í byrjun
sig, minnir eyjaskeggja að landfræðilega liggjum við nær
norðurpólnum en sólarströndum. En ízlenski andinn verður
aldrei beygður, erfitt veðurfar hefur löngum vakið upp
baráttuþrek okkar og gert okkur að þeirri stórþjóð sem við
erum í dag. Eitt ástsælasta kvæði þjóðarinnar heitir eigi að
ósekju Stormur og ég skal troða því í pípu mína og reykja
það, að Björgólfur Thor væri ekki ríkari heldur en Donald
Trump, hefði hann fæðst á Benedorm.Lóan boðar vorkomu þó svo
að Sigrún Lóa boði eilíft sumar með matseld sinni og viðveru
Sigrúnar og þvílík veisla!! Heita súkkulaðitertan sem við
fengum í eftirrétt var punkturinn yfir i-ið. Óskapleg og
fölskvalaus tilhlökkun fyrir vikunni,nú er allt að smella
saman hjá Reykjavík FM og útsendingar hefjast von bráðar.
Rétt að fara að hlaða vélbyssukjaftinn því nóg er af
málefnunum. Er ekki sammála sumum með það að málefni og
rokktónlist fari ekki saman. Ætla að halda uppteknum hætti og
tala um þau málefni sem mér finnst þurfa að tala um, á
málefnalegan hátt að sjálfsögðu, í bland við eðalrokkmúsík.
Og fólk verður að standa með okkur því it´s a fight won by
numbers. Xfm var ekki fullkomin stöð en öldur ljósvakana eru
snauðari eftir að hún fór úr loftinu,rokkútvarp dagsins í dag
er ekki uppá marga fiska (finnst mér) og maður finnur
annaðhvort ríkisþefinn og/eða 7 milljarða taps fnykinn langar
leiðir í gengnum viðtækið. Okkur langar að breyta þessu,menn
þurfa ástríðu í útvarp, hafa gaman af því sem þeir eru að
gera og "the force" er vonandi með okkur strákunum því allt
er þetta gert á háréttum forsendum. Vona að fólk komi til með
að hlusta, ekki af greiðvikni, heldur fyrst fyrir
forvitnissakir og síðar útaf áhuganum. Vinna kl 8, tók VDO
törn um helgina, koma fyrir 3500 reiðhjólum, gaman af því,
njee reyndar ekki en gott að hreinsa hausinn fyrir
Reykjavík FM 105.0- The Bonham Show
íslenska útvarpsfélagið núna um áramótin, var bæði kiss og xfm
lokað eins og flestir vita. Leiðinlegt þar sem að allt gekk
rosalega vel að manni fannst þó að alltaf megi gera betur. Og
merkilegt að fyrirtæki eins og 365 sem að tapar 7 milljörðum á ári
geti útrýmt samkeppni á þennan hátt en það þýðir ekkert að vera
bitur og sár. Menn brettu einfaldlega upp ermarnar, fengu góða menn
með sér og hófu undirbúning nýrrar rokkútvarpsstöðvar í
febrúarbyrjun. Ég get alveg sagt ykkur að þau eru búin að vera ófá
höndtökin við þetta og miklu meira verk að koma svona á koppinn en
maður hélt en nú sér fyrir endann á þessu og þetta verður rosaleg
stöð, því skal ég lofa ykkur. Stefnum á að byrja prufuútsendingar
um helgina og almenn dagskrá hefst,ef guð lofar, í næstu viku.
Capone, The Bonham Show, Doddi Litli, Stjáni Stuð, Dordingull,
Kóngurinn og Fíflið, Straumur og fleiri góðir. Spennandi tímar og
nú verða allir að stilla á Reykjavík FM 105.0 og láta boðskapinn
berast. Fáðu pabba og mömmu, afa og ömmu, frænkur og frændur, vini
og kunningja til að hlusta á alvöru útvarpsstöð, lausa við rembing
og stæla. Keep On Rockin´ In The Free World. Bonham
Hið pólítíska landslag
sést greinilega ef maður rýnir eilítið í pólitíkina. Siv
Friðleifsdóttir afrekaði hið ómögulega í vikunni sem leið,
hún náði að veikja stöðu framsóknarflokksins enn frekar,
eitthvað sem ég hélt að væri ómögulegt. Klaufalegt hjá vönum
stjórnmálamanni eins og Sif á nú að vera að orða hlutina
þannig að það sé hægt að lesa úr þeim hótun og ennþá
klaufalegra að hóta sjálfstæðisflokknum beint eins og hún
gerði. Framsóknarmönnum veitir ekkert af öllum vinum sínum í
þessum kosningum, það er ljóst. Meiraaðsegja
stjórnarandstaðan spilar öruggan leik,bæði vinstri grænir og
frjálslyndir hafa ekki útilokað eitt né neitt í sambandi við
mögulegt stjórnarsamstarf eftir kosningar. Ég ætla að kjósa
sjálfstæðisflokkinn það er á hreinu,ég kýs örugga
fjármálastjórn áfram. Mér finnst alltof margir vera að týna
sér í umhverfispælingum þessa dagana. Ekki það að ég vilji
álver í alla firði og hálendið á kaf, vil bara eiga feitan
sjóð þegar ég leiði hugann að því :ö). Öruggt og gott
umhverfi fyrir mig og mína og Ísland er á réttri leið og það
hefur gerst undir stjórn sjálfstæðismanna. Ps Ég þoli ekki
samfylkinguna. Nenni ekki að telja það upp sem að ég þoli
ekki við hana það er svo margt. Frjálslyndir?? Common þetta
snýst um hag okkar allra þetta er ekkert grín, frjálslyndir
ekki séns. Vinstri grænir. Steingrímur er skeleggur og klár
kall en það er of miklar umhverfispælingar en ef að þú
útskrifaðist úr MH, kaupir föt í spútnik, hlustar á Sigurrós
og færð pening frá pabba þegar þér vantar og þarft ekkert að
spá hvaðan hann kemur go nuts, kjóstu vinstri græna og
bjargaðu umhverfinu, mjög göfugt. Þetta er mín skoðun á
Glundroðakenningin
sérstök ástæða....eða jú kannski. Styttist óðum í stóru stundina,
allir menn á dekki og allt það. Flest ykkar vita væntanlega hvað ég
á við en ég/við munum tilkynna þetta með pompi og pragt í næstu
viku og byrja jafnframt. Og bara svo að við höfum allt á hreinu þá
er ég hvorki að tala um börn eða trúlofun, þetta er atvinnulegs
eðlis. Helgin nánast eins og óskrifað blað. Reyndar ætlum við Dóri
standsetja mótorhjólakerruna sem ég og Búi eigum. Það þarf að mála
hana og setja á hana ljós og bretti og gera hana klára. Glöggir
vinir og lesendur vita sjálfsagt að ekkert á ég mótorhjólið og ekki
Búi heldur en eins og skátarnir segja ávallt viðbúinir :-). Svo
verður kerran fjölnota þ.e gægt að nota hana eins og venjulega
kerru. Tók eftir því núna um daginn að þónokkuð margir virðast
kíkja á þetta sjálfhverfa blaður á hverjum degi. Voðalega gaman af
því en mér væri heiður sýndur með fleiri athugasem(commentum)
og/eða hripi í gestabók. Góða helgi öllsömull og munið hver er
sinnar hamingju smiður.
Steven Seagal er maðurinn.....
lánað um helgina. Above the law, Nico og fleiri snilldarræmur
hóf störf í útvarpi, tók belgurinn að stækka. Mér leiðist
líkamsrækt og líkamsræktarstöðvar eru leiðinlegir staðir af mínu
mati. Nema hvað að fyrir rétt um mánuði síðan byrjaði ég
stofugólfinu heima. Ekkert fancy prógram heldur bara þangað til að
mig verkjaði bæði í magann og í hendurnar. Og ég vigtaði mig um
daginn, 4 kíló af belg farin og magavöðvarnir komnir í gegn. Ekkert
þvottabretti ennþá en ég er ekkert smá sáttur með árangurinn. Þetta
helst allt í hendur við gjörbreytt mataræði heimafyrir, nánast enga
gosneyslu og sælgæti aðeins á laugardögum. Og í fyrsta skipti á
ævinni langar mig að halda áfram,gera fjölbreyttari æfingar og koma
mér í gott form,því ég hélt satt best að segja að þetta væri miklu
meira mál. En ég ætla ekki á neina líkamsræktarstöð!! Fer til
námsráðgjafa í Háskólanum í vikunni. Þarf að vita allra
fljótlegustu leiðina inní stjórnmálafræði við Háskóla Íslands( með
fjölmiðlafræði sem valfag). Þarf fyrst að tækla minn forna fjanda
stúdentsprófið. Er búinn með slatta en þarf að klára það á sem
skemmstum tíma sem er allt í lagi. En ef að það vill svo ólíklega
til að ég komist að í Háskólanum án þess að klára stúdentsprófið þá
nýti ég mér það, mér er alveg sama hvort að það sé á skránni eður
ei. En líklegast þarf ég að klára það fyrst og þá ætla ég mér að
klára það og fara að læra það sem ég hef áhuga á. Smá bílasession í
kvöld með Dóra,ætlum að liðka bremsurnar á Alfanum hans. Ciao Bella
Um málnotkun og orðadæmi
byrjaði. Ég hef svosem skrifað um þetta áður en ég fæ ekki nóg.
Íslenska tungumálið okkar er fallegt og gott tungumál og ég vil
halda því jafn auðugu inní 21. öldina. Fékk nettan fiðring þegar ég
las morgunblaðið í morgun og rak nokkrum sinnum augun í
orðatiltækið "að vera eldri en tvævetur". Kjarnyrt og góð íslenska
sem ber vott um gáfur og göfugmennsku þess er notar. Sé oft
eitthvað svona sem ég vil bæta í orðaforðann, ekki það að ég hafi
ekki heyrt þetta áður, ég bara tók fyrst eftir því í morgun hvað
þetta er töff. Mér hefur bæði verið hrósað og ég gagnrýndur fyrir
orðanotkun í útvarpi en ég ígrunda orðaforðann minn vel og er
alltaf að slípa til. Svo hef ég mjög gaman af því að "skapa" orð.
Ferskasta dæmið er orðið "kjarnatöffari". Þetta nota ég í
meiningunni " Björgvin Halldórsson er einn af kjarnatöffurum
íslenskrar dægurmenningar" þ.e hann hefur alltaf verið töff. Ekki
veit ég hvort einhverjum þykja þessar hugrenningar mínar
áhugaverðar eður ei enda er mér skítsama, mér þykja þær einstaklega
Viktor til að kíkja á leikinn. Svo er heimildarmynd um Pete Best,
fyrsta trommara bítlana, á rúv í kvöld. Skylduáhorf!!! Ps Ford
nýr!! Kaupi svona bíl fremur en mótorhjól hvenær sem af því verður.
Hingað kominn fyrir rétt yfir milljón og kostar ekki nema c.a
5000kr á ári að tryggja sökum þess að þetta er fornbíll. Svona bíl
á maður alla ævina og mótorhjóladæmið er fljótt að ná milljón,
hjól-próf og galli er c.a ein milljón og svo 400.000 kall á ári í
tryggingar. Gerði mér bara ekki grein fyrir því fyrr hversu
hagstæður dollarinn er, stendur í 66.86 kr!! Já það er gaman að
láta sig dreyma en tölurnar sýna að þessi Mustang draumur er
raunhæfari peningalega séð heldur en mótorhjóladraumurinn eins
ótrúlegt og það nú er.
Þegar gufan öskraði
að baki. Hjálpaði Magga aðeins á föstudaginn við hurðauppsetningu
og renndi svo austur á Ingólfshvol þar sem pind var að spila ásamt
Nilfisk, Von Esterbergs ofl. Fín stemning og ágætis gigg. Vaknaði
snemma á laugardaginn til þess að ná að gera mest með magga fyrir
brottför á Örkina. Náði að aðstoða hann með það sem hann þurfti
aðstoð við en drengurinn er handlaginn og gat nú séð um megnið af
þessu sjálfur. Vorum ekkert að flýta okkur af stað, vorum ekki
komin austur fyrren um 5 leytið og tókum stressleysið á þetta.
Skelltum okkur í gufu og pottinn og fengum næstum taugaáfall þegar
gufan öskraði þ.e hverinn sem gufan er byggð ofan á opnaðist og
blés gufu inn. Fórum í göngutúr og tókum okkur til fyrir matinn í
rólegheitunum. 5 rétta veislumatseðill, þvílíkt góður matur m.a
saltfiskur, lamb og humarsúpa. Sváfum til hádegis og kíktum svo í
Eden og þetta klassíska. Afslappandi og afskaplega notaleg helgi.
Gjafastuð
morgun og stóðst svo ekki mátið að afhenda henni gjöfina nú um
hádegisbilið, enda erfitt að fela heilan bíl. Seldi hvítu Toyotuna
og keypti biksvartan Peugot 206 ´99 módel, algöran stelpukagga.
Málið er að Bára átti svona bíl áður en við kynntumst og sá alltaf
eftir honum. Þannig að ég er búinn að vera að leita af góðu svörtu
eintaki í 3 vikur. Keypti þennan af Ingvari Helgasyni, á frábæru
verði, vel yfirfarinn af þeim(3. mán ábyrgð) og ég náði að kreista
út ný heilsársdekk og nýjan Pioneer mp3 geislaspilara. Mjög vel með
farin og fínn bíll enda var Bára þvílíkt ánægð þegar hún var búin
að jafna sig á sjokkinu(henni brá svolítið). Nú er bara málið að
vera duglegur að vinna og ég kaupi mér nú líklega ekki mótorhjól í
sumar enda bílaflotinn á heimilinu búinn að upgrateast allsvakalega
á skömmum tíma. Ps Hver haldiði að fái Passatinn alveg í friði núna
;-). Flott pindæfing í gær og nú mundi maður hvað þetta
hljómsveitarbrölt er hrikalega skemmtileg, spái dúndurconcert hjá
pindurum á föstudaginn. Þarf að hjálpa Magga með innihurðir svona
eins og ég get áður en við Bára förum á Örkina. Sælir eru duglegir
því að þeim leiðist ekki. PPs byrja aftur í útvarpinu um
mánaðarmótin, meira um það síðar. Bonham
Mojo Classic
Fjárfesti í Bowie eintakinu um helgina og eins og svo oft áður
þegar maður les þessi blöð fór ég að gera mér grein fyrir því
hvurslags snillingur maðurinn er. Þetta gerðist líka þegar að ég
las Ozzy, Elvis og mörg mörg fleiri. Það er ekki að ósekju að Bowie
var valinn áhrifamesti listamaður 20. aldar og skaut þar með Bob
Dylan ref fyrir rass þó svo að hann hafi haft áhrif á ansi marga.
Afmælisvika hjá Báru, jebb hún heldur afmælisviku,en
afmælisdagurinn er á sunnudaginn. Hún fékk nýtt veski, skó og bol
um helgina sem var svona smá upphitun. Verðum á Hótel Örk
aðfaranótt sunnudagsins, förum þangað snemma á laugardaginn og
látum dekstra við okkur og borðum góðan mat og svona. Er ekki alveg
búinn að negla aðalgjöfina en fæ úr því skorið í dag eða á morgun,
og hún er svakaleg!!!! Líklegra en hitt að af þeirri gjöf verði en
meira um það síðar. Gæti dottið í pind æfingu í kvöld og jafnvel
gigg á föstudaginn á Ingólfshvoli. Um að gera að sleppa því að æfa,
ekki vera komnir með plötusamning. Þeir fiska sem róa. Tók
greindarpróf nýverið, ekkert á netinu bull, alvöru próf. Er bara
Stríðslistin
fullkomin endir á seríunni. Stallone á hárréttum tíma á ferlinum
til að gera þessa mynd, þarf að sanna sig rétt eins og Rocky í
myndinni. Frábær mynd og ég get ekki beðið eftir nýju Rambo second
blood first round part 5. Er hægt og bítandi að rífa mig uppúr
flensu, var að drepast í gær en er öllu skárri núna. Missti af
pókerkvöldi hjá Dóra en mæti galvaskur næst og hirði pottinn. Erum
að fara í kaffiboð til Magga og fjölskyldu á eftir sem verður án
efa meiriháttar, hef a.m.k aldrei orðið svikinn þegar maður snæðir
þar á bæ. Erum einmitt að reyna að taka mataræðið í gegn,
nammidagar á laugardögum og svona, drekka meira vatn og allt gengur
þetta mjög vel. Borðaði meira að segja tvisvar á maður lifandi í
vikunni og það hélt ég að ég ætti aldrei eftir að gera. Ætla svosem
ekki að reyna að borða bara gras en bara það að minnka gosdrykkju
og nammiát á kvöldin breytir miklu. Ætla að skella mér á bókasafnið
í vikunni og ná mér í The art of war eftir shu tzy. Held að þetta
sé merkileg bók sem var skrifuð af japönskum(frekar en kínverskum)
herhöfðinga fyrir margt löngu. Fjallar í grunninn um stríð og
hvernig sé best að sigra andstæðinginn en í rauninni á þetta við í
lífinu öllu. Þessi bók hefur löngum verið vinsæl meðal
að vera loftnetslaus í 3 mánuði og það er ágætt að geta t,d horft á
fréttir á ný. 100 erlendar stöðvar fylgja frítt með í 30 daga og
merkilegt frá því að segja að 95 þeirra eru rusl!! En hinsvegar hef
ég faðmað nördinn í sjálfum mér á stöðvum eins og Discovery sem er
alger eðalstöð. Er límdur yfir þáttum eins og Who was Moses? og
söguþætti ýmiskonar svo að ég tali nú ekki um eðalþætti eins og
American Chopper og Wheeler Dealers, fullt af frábærum bílaþáttum
sem ég er orðinn háður. Horfumst í augu við það. Janúar og Febrúar
Gamlar syndir á silfurgráu skýi
alla staði. Óvænt vinnutörn hjá mér og Báru þessa helgina,
vörutalning hjá VDO bæði laugardag og sunnudag, gott að hafa nóg að
gera. Er búinn að hreinsa upp "gamlar syndir" undanfarna daga og í
dag þ.e eitthvað sem ég hef ætlað að gera lengi. Þétti
bílskúrshurðina hjá ömmu hennar Báru í vikunni og smíðaði skáp inní
svefnherbergið hennar, er búinn að ætla að gera þetta í hálft ár!
Svo þegar við kláruðum á VDO í dag fékk ég að nota verkstæðið
aðeins. Skellti Toyotunni okkar gömlu í smá makeover, annað sem ég
hef ætlað að gera lengi. Það borgar sig ekkert að selja bílinn,
enda á hann nóg eftir og fínt að hafa tvo bíla. Alveg ókeyrt, í
toppstandi, heilan undirvagn en smá ryð hér og þar í boddýinu
aðallega fyrir ofan framrúðuna sem lak orðið(þetta atriði olli
kaupunum á Passat öðru fremur). Ég tók ryðið í gegn náði agalega
huggulegum kítistaum fyrir ofan rúðuna sem þéttir hana og leit bara
nokkuð vel út. Mála svo yfir með hvítu vélalakki á morgun, alger
snilld. Og þvílíkt sem maður verður sáttur við dagsverkið þegar
maður drífur í einhverju sem hefur setið á hakanum allt of lengi.
Og nú get ég snúið mér að einhverju öðru en bílamálum og væntanlega
Enn af bílamálum..................og handbolta
maður misst sig yfir svona leik, var gjörsamlega eftir mig.
Bílamálin tóku óvænta beygju í gær þegar Bára sagði að sér fyndist
Subaruinn ekkert svo flottur, ég hváði við og við tókum
bílasölurúnt til að hún gæti sýnt mér bíl eins og hana langaði í.
FSI Highline, stóran og breiðan. Svona bíll er klassa ofar en
Subaruinn bæði í gæðum og verði, en ég fer og fæ lyklana og við
tökum rúnt. Rosalegur bíll í alla staði, stór og mikill, highline
er rollstýpan með leðri sóllúgu og öllu. Nema hvað að okkur leist
afbragðsvel á kaggann og buðum í hann uppá von og óvön og fengum
hann!! Sækjum hann núna í hádeginu. Ég er mjög sáttur, svona bíll
kostar 3,7 nýr, þessi er ársgamall,keyrður 16.000km og er klassa
ofar en bíllinn sem ég ætlaði að stökkva á þ.e Subaruinn. Hvar væri
ég án hennar Báru minnar :-). Heyrði í Gunnari Bjarka í gær en
fyrirtækið hans er að vinna verk uppá Kárahnjúkum og það æxlaðist
þannig að hann fékk Ægi bróðir sem aðstoðarmann. Þeir sátu ásamt
öðrum í gær fengu sér nokkra og það var ekkert smá gaman að heyra í
Gunnsa. Það er gömul saga og ný að þegar menn væta kverkar eilítið
þá losnar um málhöftin og þar sem Gunnar var mildur áttum við
frábært samtal æskuvinirnir og Bára hafði á orði hvað ég var glaður
eftir samtalið. Þetta sýnir enn og aftur að maður á að vera miklu
Youtube
sveit Joy Division. Hellingur af myndböndum en ég hvet alla til að
tékka á flutningi þeirra á hinu kyngimagnaða " Transmission " þar
sem trommuleikarinn Stephen Morris brillerar. Black Sabbath koma
einnig sterkir inn á youtube og Ozzy í árdaga ferilsins er
kennslumyndband fyrir alla söngvara í rokkhljómsveit. Fáum bílinn
ekki fyrren á þriðjudaginn í þarnæstu viku, minn ekki sáttur þar
sem að hann átti að vera kominn til landsins. Ætla klárlega að
grenja út dökkar rúður, teflonbónhúð og sitthvað fleira fyrir
ómakið. Athyglivert á mbl í dag þar sem talað er um að danska
tungumálið sé orðið gegnsýrt af ensku, truflandi þykir mér hvað
þetta er að gerast víða t,d hér á Íslandi. Sárt er að horfa til
þess að tungumálið okkar sé hægt og sígandi að "einfaldast". Gömul
og góð orð og orðatiltæki falla í gleymskunnar dá, rifjaði upp
kynni mín af bók sem var mikið lesin fyrir mig sem barn. Sagan um
Bláskjá, frábær saga, þýdd að ég held eftir þýskri bók fyrir
margtlöngu. Áberandi falleg og auðug íslenska og þegar ég las þessa
bók um daginn eftir áralangt hlé tók ég sérstaklega eftir þessu.
Hvet barnafólk að skella sér á bókasafnið. Góðar og gleðilegar
stundir Bonham
Spennufall
náði. Bjössi (fósturpabbi Báru) kom í gær með Lindu litlu og vildi
endilega bjóða okkur út að borða til að fagna aðeins. Mamma hennar
er fyrir norðan og kemur í kvöld og þá förum við á Argentínu.
Hituðum aðeins upp í gær og kíktum á 3 frakka og fengum plokkfisk
hinsvegar vera margverðlaunaður réttur og þar að auki hef ég aldrei
smakkað plokkfisk!! Og vá þvílíkur snilldar réttur (hann er víst
miklu betri en þessi venjulegi heimagerði). Hef bara sjaldan orðið
eins saddur. Og Sigrún komum í næstu viku á kagganum, bara