punk is not dead
12.03.2007 15:59:29 / brocco

Goodbye

Ætla að færa mig um set http://bonham.blog.is. endilega kíkið við

» 1 hafa sagt sína skoðun

11.03.2007 07:20:32 / brocco

Vorið er komið......

Og grundirnar gróa. Einmuna veðurblíða á eyjunni er kennd er við ís. Notalegt élið leikur um andlitið á meðan stöku bárujárnsplata blaktir í vindinum. Oft eru landar vorir eins og sauðnaut að vori, sumir jafnvel byrjaðir að ræða um sumardekk, aðrir um stuttbuxur og vorkomu í byrjun mars!!! En sem fyrr minnir ízlenska veðurgyðjan Hret, á sig, minnir eyjaskeggja að landfræðilega liggjum við nær norðurpólnum en sólarströndum. En ízlenski andinn verður aldrei beygður, erfitt veðurfar hefur löngum vakið upp baráttuþrek okkar og gert okkur að þeirri stórþjóð sem við erum í dag. Eitt ástsælasta kvæði þjóðarinnar heitir eigi að ósekju Stormur og ég skal troða því í pípu mína og reykja það, að Björgólfur Thor væri ekki ríkari heldur en Donald Trump, hefði hann fæðst á Benedorm.Lóan boðar vorkomu þó svo að Sigrún Lóa boði eilíft sumar með matseld sinni og viðveru einni saman...Smooth...Fórum í matarboð til Magga & Sigrúnar og þvílík veisla!! Heita súkkulaðitertan sem við fengum í eftirrétt var punkturinn yfir i-ið. Óskapleg og fölskvalaus tilhlökkun fyrir vikunni,nú er allt að smella saman hjá Reykjavík FM og útsendingar hefjast von bráðar. Rétt að fara að hlaða vélbyssukjaftinn því nóg er af málefnunum. Er ekki sammála sumum með það að málefni og rokktónlist fari ekki saman. Ætla að halda uppteknum hætti og tala um þau málefni sem mér finnst þurfa að tala um, á málefnalegan hátt að sjálfsögðu, í bland við eðalrokkmúsík. Og fólk verður að standa með okkur því it´s a fight won by numbers. Xfm var ekki fullkomin stöð en öldur ljósvakana eru snauðari eftir að hún fór úr loftinu,rokkútvarp dagsins í dag er ekki uppá marga fiska (finnst mér) og maður finnur annaðhvort ríkisþefinn og/eða 7 milljarða taps fnykinn langar leiðir í gengnum viðtækið. Okkur langar að breyta þessu,menn þurfa ástríðu í útvarp, hafa gaman af því sem þeir eru að gera og "the force" er vonandi með okkur strákunum því allt er þetta gert á háréttum forsendum. Vona að fólk komi til með að hlusta, ekki af greiðvikni, heldur fyrst fyrir forvitnissakir og síðar útaf áhuganum. Vinna kl 8, tók VDO törn um helgina, koma fyrir 3500 reiðhjólum, gaman af því, njee reyndar ekki en gott að hreinsa hausinn fyrir átökin með "alvöru" vinnu. Bonham


» 7 hafa sagt sína skoðun

08.03.2007 13:11:46 / brocco

Reykjavík FM 105.0- The Bonham Show

Að búa til útvarpsstöð er góð skemmtun... Þegar 365 miðlar keyptu íslenska útvarpsfélagið núna um áramótin, var bæði kiss og xfm lokað eins og flestir vita. Leiðinlegt þar sem að allt gekk rosalega vel að manni fannst þó að alltaf megi gera betur. Og merkilegt að fyrirtæki eins og 365 sem að tapar 7 milljörðum á ári geti útrýmt samkeppni á þennan hátt en það þýðir ekkert að vera bitur og sár. Menn brettu einfaldlega upp ermarnar, fengu góða menn með sér og hófu undirbúning nýrrar rokkútvarpsstöðvar í febrúarbyrjun. Ég get alveg sagt ykkur að þau eru búin að vera ófá höndtökin við þetta og miklu meira verk að koma svona á koppinn en maður hélt en nú sér fyrir endann á þessu og þetta verður rosaleg stöð, því skal ég lofa ykkur. Stefnum á að byrja prufuútsendingar um helgina og almenn dagskrá hefst,ef guð lofar, í næstu viku. Capone, The Bonham Show, Doddi Litli, Stjáni Stuð, Dordingull, Kóngurinn og Fíflið, Straumur og fleiri góðir. Spennandi tímar og nú verða allir að stilla á Reykjavík FM 105.0 og láta boðskapinn berast. Fáðu pabba og mömmu, afa og ömmu, frænkur og frændur, vini og kunningja til að hlusta á alvöru útvarpsstöð, lausa við rembing og stæla. Keep On Rockin´ In The Free World. Bonham

» 9 hafa sagt sína skoðun

06.03.2007 13:47:42 / brocco

Hið pólítíska landslag

Senn líður að kosningum á landinu bláa og það sést greinilega ef maður rýnir eilítið í pólitíkina. Siv Friðleifsdóttir afrekaði hið ómögulega í vikunni sem leið, hún náði að veikja stöðu framsóknarflokksins enn frekar, eitthvað sem ég hélt að væri ómögulegt. Klaufalegt hjá vönum stjórnmálamanni eins og Sif á nú að vera að orða hlutina þannig að það sé hægt að lesa úr þeim hótun og ennþá klaufalegra að hóta sjálfstæðisflokknum beint eins og hún gerði. Framsóknarmönnum veitir ekkert af öllum vinum sínum í þessum kosningum, það er ljóst. Meiraaðsegja stjórnarandstaðan spilar öruggan leik,bæði vinstri grænir og frjálslyndir hafa ekki útilokað eitt né neitt í sambandi við mögulegt stjórnarsamstarf eftir kosningar. Ég ætla að kjósa sjálfstæðisflokkinn það er á hreinu,ég kýs örugga fjármálastjórn áfram. Mér finnst alltof margir vera að týna sér í umhverfispælingum þessa dagana. Ekki það að ég vilji álver í alla firði og hálendið á kaf, vil bara eiga feitan sjóð þegar ég leiði hugann að því :ö). Öruggt og gott umhverfi fyrir mig og mína og Ísland er á réttri leið og það hefur gerst undir stjórn sjálfstæðismanna. Ps Ég þoli ekki samfylkinguna. Nenni ekki að telja það upp sem að ég þoli ekki við hana það er svo margt. Frjálslyndir?? Common þetta snýst um hag okkar allra þetta er ekkert grín, frjálslyndir ekki séns. Vinstri grænir. Steingrímur er skeleggur og klár kall en það er of miklar umhverfispælingar en ef að þú útskrifaðist úr MH, kaupir föt í spútnik, hlustar á Sigurrós og færð pening frá pabba þegar þér vantar og þarft ekkert að spá hvaðan hann kemur go nuts, kjóstu vinstri græna og bjargaðu umhverfinu, mjög göfugt. Þetta er mín skoðun á þessu, hvað finnst þér??

» 3 hafa sagt sína skoðun

02.03.2007 10:49:41 / brocco

Glundroðakenningin

Glundroði er orð sem er mér ofarlega í huga þessa dagana. Engin sérstök ástæða....eða jú kannski. Styttist óðum í stóru stundina, allir menn á dekki og allt það. Flest ykkar vita væntanlega hvað ég á við en ég/við munum tilkynna þetta með pompi og pragt í næstu viku og byrja jafnframt. Og bara svo að við höfum allt á hreinu þá er ég hvorki að tala um börn eða trúlofun, þetta er atvinnulegs eðlis. Helgin nánast eins og óskrifað blað. Reyndar ætlum við Dóri að klára Alfann í kvöld og  byrja kannski e-ð aðeins að standsetja mótorhjólakerruna sem ég og Búi eigum. Það þarf að mála hana og setja á hana ljós og bretti og gera hana klára. Glöggir vinir og lesendur vita sjálfsagt að ekkert á ég mótorhjólið og ekki Búi heldur en eins og skátarnir segja ávallt viðbúinir :-). Svo verður kerran fjölnota þ.e gægt að nota hana eins og venjulega kerru. Tók eftir því núna um daginn að þónokkuð margir virðast kíkja á þetta sjálfhverfa blaður á hverjum degi. Voðalega gaman af því en mér væri heiður sýndur með fleiri athugasem(commentum) og/eða hripi í gestabók. Góða helgi öllsömull og munið hver er sinnar hamingju smiður.

» 7 hafa sagt sína skoðun

27.02.2007 10:53:53 / brocco

Steven Seagal er maðurinn.....

Ægir bróðir keypti Steven Seagal safnið um daginn og ég fékk það lánað um helgina. Above the law, Nico og fleiri snilldarræmur endurnýjuðu trú mína á meistaranum.

Ég hef nú aldrei átt við offituvandamál að stríða en eftir að ég hóf störf í útvarpi, tók belgurinn að stækka. Mér leiðist líkamsrækt og líkamsræktarstöðvar eru leiðinlegir staðir af mínu mati. Nema hvað að fyrir rétt um mánuði síðan byrjaði ég að gera armbeygjur og magaæfingar á hverju kvöldi á stofugólfinu heima. Ekkert fancy prógram heldur bara þangað til að mig verkjaði bæði í magann og í hendurnar. Og ég vigtaði mig um daginn, 4 kíló af belg farin og magavöðvarnir komnir í gegn. Ekkert þvottabretti ennþá en ég er ekkert smá sáttur með árangurinn. Þetta helst allt í hendur við gjörbreytt mataræði heimafyrir, nánast enga gosneyslu og sælgæti aðeins á laugardögum. Og í fyrsta skipti á ævinni langar mig að halda áfram,gera fjölbreyttari æfingar og koma mér í gott form,því ég hélt satt best að segja að þetta væri miklu meira mál. En ég ætla ekki á neina líkamsræktarstöð!! Fer til námsráðgjafa í Háskólanum í vikunni. Þarf að vita allra fljótlegustu leiðina inní stjórnmálafræði við Háskóla Íslands( með fjölmiðlafræði sem valfag). Þarf fyrst að tækla minn forna fjanda stúdentsprófið. Er búinn með slatta en þarf að klára það á sem skemmstum tíma sem er allt í lagi. En ef að það vill svo ólíklega til að ég komist að í Háskólanum án þess að klára stúdentsprófið þá nýti ég mér það, mér er alveg sama hvort að það sé á skránni eður ei. En líklegast þarf ég að klára það fyrst og þá ætla ég mér að klára það og fara að læra það sem ég hef áhuga á. Smá bílasession í kvöld með Dóra,ætlum að liðka bremsurnar á Alfanum hans. Ciao Bella Bonham


» 1 hafa sagt sína skoðun

21.02.2007 12:42:11 / brocco

Um málnotkun og orðadæmi

 Ég veit ekki hvenær eða hvar það gerðist en ég veit það fyrir víst að það er ekki langt síðan þessi íslenskuáhugi minn byrjaði. Ég hef svosem skrifað um þetta áður en ég fæ ekki nóg. Íslenska tungumálið okkar er fallegt og gott tungumál og ég vil halda því jafn auðugu inní 21. öldina. Fékk nettan fiðring þegar ég las morgunblaðið í morgun og rak nokkrum sinnum augun í orðatiltækið "að vera eldri en tvævetur". Kjarnyrt og góð íslenska sem ber vott um gáfur og göfugmennsku þess er notar. Sé oft eitthvað svona sem ég vil bæta í orðaforðann, ekki það að ég hafi ekki heyrt þetta áður, ég bara tók fyrst eftir því í morgun hvað þetta er töff. Mér hefur bæði verið hrósað og ég gagnrýndur fyrir orðanotkun í útvarpi en ég ígrunda orðaforðann minn vel og er alltaf að slípa til. Svo hef ég mjög gaman af því að "skapa" orð. Ferskasta dæmið er orðið "kjarnatöffari". Þetta nota ég í meiningunni " Björgvin Halldórsson er einn af kjarnatöffurum íslenskrar dægurmenningar" þ.e hann hefur alltaf verið töff. Ekki veit ég hvort einhverjum þykja þessar hugrenningar mínar áhugaverðar eður ei enda er mér skítsama, mér þykja þær einstaklega skemmtilegar. Liverpool-Barcelona í kvöld, fer með Magga á Viktor til að kíkja á leikinn. Svo er heimildarmynd um Pete Best, fyrsta trommara bítlana, á rúv í kvöld. Skylduáhorf!!! Ps Ford Mustang 1966 módel kostar um 800.000kr á ebay!! Alveg eins og nýr!! Kaupi svona bíl fremur en mótorhjól hvenær sem af því verður. Hingað kominn fyrir rétt yfir milljón og kostar ekki nema c.a 5000kr á ári að tryggja sökum þess að þetta er fornbíll. Svona bíl á maður alla ævina og mótorhjóladæmið er fljótt að ná milljón, hjól-próf og galli er c.a ein milljón og svo 400.000 kall á ári í tryggingar. Gerði mér bara ekki grein fyrir því fyrr hversu hagstæður dollarinn er, stendur í 66.86 kr!! Já það er gaman að láta sig dreyma en tölurnar sýna að þessi Mustang draumur er raunhæfari peningalega séð heldur en mótorhjóladraumurinn eins ótrúlegt og það nú er.

» 3 hafa sagt sína skoðun

18.02.2007 18:39:05 / brocco

Þegar gufan öskraði

Óska kvenkynslesendum til hamingju með daginn. Viðburðarík helgi að baki. Hjálpaði Magga aðeins á föstudaginn við hurðauppsetningu og renndi svo austur á Ingólfshvol þar sem pind var að spila ásamt Nilfisk, Von Esterbergs ofl. Fín stemning og ágætis gigg. Vaknaði snemma á laugardaginn til þess að ná að gera mest með magga fyrir brottför á Örkina. Náði að aðstoða hann með það sem hann þurfti aðstoð við en drengurinn er handlaginn og gat nú séð um megnið af þessu sjálfur. Vorum ekkert að flýta okkur af stað, vorum ekki komin austur fyrren um 5 leytið og tókum stressleysið á þetta. Skelltum okkur í gufu og pottinn og fengum næstum taugaáfall þegar gufan öskraði þ.e hverinn sem gufan er byggð ofan á opnaðist og blés gufu inn. Fórum í göngutúr og tókum okkur til fyrir matinn í rólegheitunum. 5 rétta veislumatseðill, þvílíkt góður matur m.a saltfiskur, lamb og humarsúpa. Sváfum til hádegis og kíktum svo í Eden og þetta klassíska. Afslappandi og afskaplega notaleg helgi. Ætla að fara að finna til afmælismat fyrir Báru.


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.02.2007 17:41:27 / brocco

Gjafastuð

Það gekk eftir með fínu gjöfina hennar Báru. Gekk frá því öllu í morgun og stóðst svo ekki mátið að afhenda henni gjöfina nú um hádegisbilið, enda erfitt að fela heilan bíl. Seldi hvítu Toyotuna og keypti biksvartan Peugot 206 ´99 módel, algöran stelpukagga. Málið er að Bára átti svona bíl áður en við kynntumst og sá alltaf eftir honum. Þannig að ég er búinn að vera að leita af góðu svörtu eintaki í 3 vikur. Keypti þennan af Ingvari Helgasyni, á frábæru verði, vel yfirfarinn af þeim(3. mán ábyrgð) og ég náði að kreista út ný heilsársdekk og nýjan Pioneer mp3 geislaspilara. Mjög vel með farin og fínn bíll enda var Bára þvílíkt ánægð þegar hún var búin að jafna sig á sjokkinu(henni brá svolítið). Nú er bara málið að vera duglegur að vinna og ég kaupi mér nú líklega ekki mótorhjól í sumar enda bílaflotinn á heimilinu búinn að upgrateast allsvakalega á skömmum tíma. Ps Hver haldiði að fái Passatinn alveg í friði núna ;-). Flott pindæfing í gær og nú mundi maður hvað þetta hljómsveitarbrölt er hrikalega skemmtileg, spái dúndurconcert hjá pindurum á föstudaginn. Þarf að hjálpa Magga með innihurðir svona eins og ég get áður en við Bára förum á Örkina. Sælir eru duglegir því að þeim leiðist ekki. PPs byrja aftur í útvarpinu um mánaðarmótin, meira um það síðar. Bonham

» 0 hafa sagt sína skoðun

13.02.2007 15:29:34 / brocco

Mojo Classic

Það eru alltaf jólin hjá mér þegar að Mojo Classic kemur út. Fjárfesti í Bowie eintakinu um helgina og eins og svo oft áður þegar maður les þessi blöð fór ég að gera mér grein fyrir því hvurslags snillingur maðurinn er. Þetta gerðist líka þegar að ég las Ozzy, Elvis og mörg mörg fleiri. Það er ekki að ósekju að Bowie var valinn áhrifamesti listamaður 20. aldar og skaut þar með Bob Dylan ref fyrir rass þó svo að hann hafi haft áhrif á ansi marga. Afmælisvika hjá Báru, jebb hún heldur afmælisviku,en afmælisdagurinn er á sunnudaginn. Hún fékk nýtt veski, skó og bol um helgina sem var svona smá upphitun. Verðum á Hótel Örk aðfaranótt sunnudagsins, förum þangað snemma á laugardaginn og látum dekstra við okkur og borðum góðan mat og svona. Er ekki alveg búinn að negla aðalgjöfina en fæ úr því skorið í dag eða á morgun, og hún er svakaleg!!!! Líklegra en hitt að af þeirri gjöf verði en meira um það síðar. Gæti dottið í pind æfingu í kvöld og jafnvel gigg á föstudaginn á Ingólfshvoli. Um að gera að sleppa því að æfa, erum nú þegar á heimsmælikvarða og undrun sætir að við skulum ekki vera komnir með plötusamning. Þeir fiska sem róa. Tók greindarpróf nýverið, ekkert á netinu bull, alvöru próf. Er bara nokkuð skarpur, e-ð sem kemur sjálfsagt einhverjum á óvart, var þrælsáttur við útkomuna. Bonham 

» 0 hafa sagt sína skoðun

10.02.2007 12:22:03 / brocco

Stríðslistin

Fór með Ægi bróður á Rocky VI í vikunni. Alger eðalmynd og fullkomin endir á seríunni. Stallone á hárréttum tíma á ferlinum til að gera þessa mynd, þarf að sanna sig rétt eins og Rocky í myndinni. Frábær mynd og ég get ekki beðið eftir nýju Rambo second blood first round part 5. Er hægt og bítandi að rífa mig uppúr flensu, var að drepast í gær en er öllu skárri núna. Missti af pókerkvöldi hjá Dóra en mæti galvaskur næst og hirði pottinn. Erum að fara í kaffiboð til Magga og fjölskyldu á eftir sem verður án efa meiriháttar, hef a.m.k aldrei orðið svikinn þegar maður snæðir þar á bæ. Erum einmitt að reyna að taka mataræðið í gegn, nammidagar á laugardögum og svona, drekka meira vatn og allt gengur þetta mjög vel. Borðaði meira að segja tvisvar á maður lifandi í vikunni og það hélt ég að ég ætti aldrei eftir að gera. Ætla svosem ekki að reyna að borða bara gras en bara það að minnka gosdrykkju og nammiát á kvöldin breytir miklu. Ætla að skella mér á bókasafnið í vikunni og ná mér í The art of war eftir shu tzy. Held að þetta sé merkileg bók sem var skrifuð af japönskum(frekar en kínverskum) herhöfðinga fyrir margt löngu. Fjallar í grunninn um stríð og hvernig sé best að sigra andstæðinginn en í rauninni á þetta við í lífinu öllu. Þessi bók hefur löngum verið vinsæl meðal verðbréfamiðlara og var gerð ofurvinsæl eftir að eðaltöffarinn Gordon Gekko(Michael Douglas) veifaði henni í kvikmyndinni Wall Street. Það er hollt að lesa.

Fengum sjónvarpið í gegnum ADSL(netið) um daginn. Við erum búin að vera loftnetslaus í 3 mánuði og það er ágætt að geta t,d horft á fréttir á ný. 100 erlendar stöðvar fylgja frítt með í 30 daga og merkilegt frá því að segja að 95 þeirra eru rusl!! En hinsvegar hef ég faðmað nördinn í sjálfum mér á stöðvum eins og Discovery sem er alger eðalstöð. Er límdur yfir þáttum eins og Who was Moses? og söguþætti ýmiskonar svo að ég tali nú ekki um eðalþætti eins og American Chopper og Wheeler Dealers, fullt af frábærum bílaþáttum sem ég er orðinn háður. Horfumst í augu við það. Janúar og Febrúar eru sjónvarps og bókamánuðir á landinu bláa. Bonham


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.02.2007 20:00:59 / brocco

Gamlar syndir á silfurgráu skýi

Mikið óskaplegt ökutæki er Passatinn!! Sannkallaður eðalvagn í alla staði. Óvænt vinnutörn hjá mér og Báru þessa helgina, vörutalning hjá VDO bæði laugardag og sunnudag, gott að hafa nóg að gera. Er búinn að hreinsa upp "gamlar syndir" undanfarna daga og í dag þ.e eitthvað sem ég hef ætlað að gera lengi. Þétti bílskúrshurðina hjá ömmu hennar Báru í vikunni og smíðaði skáp inní svefnherbergið hennar, er búinn að ætla að gera þetta í hálft ár! Svo þegar við kláruðum á VDO í dag fékk ég að nota verkstæðið aðeins. Skellti Toyotunni okkar gömlu í smá makeover, annað sem ég hef ætlað að gera lengi. Það borgar sig ekkert að selja bílinn, enda á hann nóg eftir og fínt að hafa tvo bíla. Alveg ókeyrt, í toppstandi, heilan undirvagn en smá ryð hér og þar í boddýinu aðallega fyrir ofan framrúðuna sem lak orðið(þetta atriði olli kaupunum á Passat öðru fremur). Ég tók ryðið í gegn náði agalega huggulegum kítistaum fyrir ofan rúðuna sem þéttir hana og leit bara nokkuð vel út. Mála svo yfir með hvítu vélalakki á morgun, alger snilld. Og þvílíkt sem maður verður sáttur við dagsverkið þegar maður drífur í einhverju sem hefur setið á hakanum allt of lengi. Og nú get ég snúið mér að einhverju öðru en bílamálum og væntanlega skrifað um e-ð fleira líka :-). Góða helgi öllsömul. Bonham


» 4 hafa sagt sína skoðun

31.01.2007 08:55:42 / brocco

Enn af bílamálum..................og handbolta

Svakalegur leikur hjá íslendingum í gær!!! Og rosalega getur maður misst sig yfir svona leik, var gjörsamlega eftir mig. Bílamálin tóku óvænta beygju í gær þegar Bára sagði að sér fyndist Subaruinn ekkert svo flottur, ég hváði við og við tókum bílasölurúnt til að hún gæti sýnt mér bíl eins og hana langaði í. Eftir smá rúnt bendir hún á ársgamlan, silfurlitaðan VW Passat FSI Highline, stóran og breiðan. Svona bíll er klassa ofar en Subaruinn bæði í gæðum og verði, en ég fer og fæ lyklana og við tökum rúnt. Rosalegur bíll í alla staði, stór og mikill, highline er rollstýpan með leðri sóllúgu og öllu. Nema hvað að okkur leist afbragðsvel á kaggann og buðum í hann uppá von og óvön og fengum hann!! Sækjum hann núna í hádeginu. Ég er mjög sáttur, svona bíll kostar 3,7 nýr, þessi er ársgamall,keyrður 16.000km og er klassa ofar en bíllinn sem ég ætlaði að stökkva á þ.e Subaruinn. Hvar væri ég án hennar Báru minnar :-). Heyrði í Gunnari Bjarka í gær en fyrirtækið hans er að vinna verk uppá Kárahnjúkum og það æxlaðist þannig að hann fékk Ægi bróðir sem aðstoðarmann. Þeir sátu ásamt öðrum í gær fengu sér nokkra og það var ekkert smá gaman að heyra í Gunnsa. Það er gömul saga og ný að þegar menn væta kverkar eilítið þá losnar um málhöftin og þar sem Gunnar var mildur áttum við frábært samtal æskuvinirnir og Bára hafði á orði hvað ég var glaður eftir samtalið. Þetta sýnir enn og aftur að maður á að vera miklu duglegri að rækta sambandið við vini sína. Bæjó


» 1 hafa sagt sína skoðun

27.01.2007 09:46:46 / brocco

Youtube

Youtube er þrælmagnað fyrirbrigði. Fletti t,d upp hinni mögnuðu sveit Joy Division. Hellingur af myndböndum en ég hvet alla til að tékka á flutningi þeirra á hinu kyngimagnaða " Transmission " þar sem trommuleikarinn Stephen Morris brillerar. Black Sabbath koma einnig sterkir inn á youtube og Ozzy í árdaga ferilsins er kennslumyndband fyrir alla söngvara í rokkhljómsveit. Fáum bílinn ekki fyrren á þriðjudaginn í þarnæstu viku, minn ekki sáttur þar sem að hann átti að vera kominn til landsins. Ætla klárlega að grenja út dökkar rúður, teflonbónhúð og sitthvað fleira fyrir ómakið. Athyglivert á mbl í dag þar sem talað er um að danska tungumálið sé orðið gegnsýrt af ensku, truflandi þykir mér hvað þetta er að gerast víða t,d hér á Íslandi. Sárt er að horfa til þess að tungumálið okkar sé hægt og sígandi að "einfaldast". Gömul og góð orð og orðatiltæki falla í gleymskunnar dá, rifjaði upp kynni mín af bók sem var mikið lesin fyrir mig sem barn. Sagan um Bláskjá, frábær saga, þýdd að ég held eftir þýskri bók fyrir margtlöngu. Áberandi falleg og auðug íslenska og þegar ég las þessa bók um daginn eftir áralangt hlé tók ég sérstaklega eftir þessu. Hvet barnafólk að skella sér á bókasafnið. Góðar og gleðilegar stundir Bonham

» 0 hafa sagt sína skoðun

19.01.2007 07:21:48 / brocco

Spennufall

Það varð hálfgert spennufall eftir að það kom í ljós að Bára náði. Bjössi (fósturpabbi Báru) kom í gær með Lindu litlu og vildi endilega bjóða okkur út að borða til að fagna aðeins. Mamma hennar er fyrir norðan og kemur í kvöld og þá förum við á Argentínu. Hituðum aðeins upp í gær og kíktum á 3 frakka og fengum plokkfisk sem er skrýtinn réttur til að pantar á matsölustað. Þetta mun hinsvegar vera margverðlaunaður réttur og þar að auki hef ég aldrei smakkað plokkfisk!! Og vá þvílíkur snilldar réttur (hann er víst miklu betri en þessi venjulegi heimagerði). Hef bara sjaldan orðið eins saddur. Og Sigrún komum í næstu viku á kagganum, bara prinsippmál að bíða eftir nýja bílnum og koma svo í kaffi :-)


» 10 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 20